Hver tekur við af Klopp? - Dani Olmo orðaður við Man Utd - Greenwood í skiptum fyrir Gleison Bremer
   þri 15. apríl 2014 20:36
Alexander Freyr Tamimi
England: Arsenal kom til baka og kláraði West Ham
Podolski skoraði tvö.
Podolski skoraði tvö.
Mynd: Getty Images
Arsenal 3 - 1 West Ham
0-1 Matthew Jarvis ('40 )
1-1 Lukas Podolski ('44 )
2-1 Olivier Giroud ('55 )
3-1 Lukas Podolski ('78 )

Arsenal vann 3-1 sigur gegn West Ham í eina leik kvöldsins í ensku úrvalsdeildinni, sem lauk rétt í þessu.

Markalaust var vel framan af leik, en á 40. mínútu kom Matt Jarvis gestunum í West Ham í 1-0.

Lukas Podolski náði hins vegar að jafna metin fyrir leikhlé og staðan í hálfleik 1-1.

Í seinni hálfleik var leikurinn svo að mestu leiti eign Arsenal og þeir Olivier Giroud og Lukas Podolski bættu við tveimur mörkum. Lokatölur 3-1 og Arsenal fór aftur upp í 4. sætið.

West Ham er enn í 11. sætinu.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner