Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   þri 15. apríl 2014 09:31
Magnús Már Einarsson
Manchester United býður Kroos góðan launapakka
,,Á ég að fara?
,,Á ég að fara?"
Mynd: Getty Images
Manchester United ætlar að bjóða Toni Kroos miðjumanni FC Bayern 260 þúsund pund í vikulaun ef hann kemur til félagsins frá FC Bayern í sumar. Guardian greinir frá þessu í dag.

Wayne Rooney er launahæsti leikmaður Manchester United með í kringum 300 þúsund pund á viku en Kroos gæti orðið einn af launahæstu leikmönnum félagsins ef hann kemur á Old Trafford í sumar.

Hinn 24 ára gamli Kroos er að skoða stöðu sína en Bayern hefur sagt að hann sé ekki til sölu.

Manchester United vonast þó til að geta keypt Kroos en samningur hans við Bayern rennur út sumarið 2015 og leikmaðurinn hefur ekki gengið frá nýjum samningi ennþá.
Athugasemdir
banner
banner
banner