Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   þri 15. apríl 2014 23:00
Alexander Freyr Tamimi
Mynd: Lýst eftir Erik Lamela
Lamela hefur lítið sést á leiktíðinni.
Lamela hefur lítið sést á leiktíðinni.
Mynd: Getty Images
Erik Lamela, sóknarmaður Tottenham, verður seint talinn vera með betri kaupum sem gerð voru síðasta sumar.

Argentínumaðurinn varð dýrasti leikmaðurinn í sögu Tottenham þegar hann gekk til liðs við félagið frá Roma síðasta sumar, en hefur engan veginn staðið undir væntingum.

Lamela hefur heillað fáa í þeim leikjum sem hann hefur spilað, í raun hefur hann varla sést á vellinum. Svo hefur hann að vísu verið óheppinn með meiðsli.

En það þarf kannski engan að undra að nú sé farið að lýsa eftir Lamela.


Athugasemdir
banner
banner