HM yrði enn skemmtilegra ef Zlatan Ibrahimovic ákveður að gefa kost á sér fyrir sænska landsliðið. Zlatan hefur gefið sterklega í skyn að hann muni gefa kost á sér fyrir mótið.
Zlatan gaf það út eftir EM í Frakklandi 2016 að landsliðsskórnir væru komnir upp á hillu.
Hann hefur hins vegar ýjað að því síðustu vikur að hann muni dusta rykið af þeim og spila á HM.
Hann tístaði svo í dag að líkurnar á því að hann myndi spila á HM „væru himinháar".

Hinn 36 ára gamli Zlatan gekk í raðir Los Angeles Galaxy frá Manchester United í síðasta mánuði. Zlatan hefur farið vel af stað í Bandaríkjunum og skorað þrjú mörk í fyrstu tveimur leikjum sínum.
The chance of me playing in the World Cup is skyhöga #FifaWorldCup2018
— Zlatan Ibrahimović (@Ibra_official) April 15, 2018
Athugasemdir