Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   sun 15. apríl 2018 20:43
Gunnar Logi Gylfason
Ítalía: Markalaust í slagnum um höfuðborgina
Mynd: Getty Images
Höfuðborgarslagurinn á milli Lazio og Roma var síðasti leikur dagsins og er honum nú lokið.

Mikið var í húfi en liðin voru með jafn mörg stig og sátu í 3. og 4. sæti deildarinnar en Inter Milan var einnig komið upp að hlið þeirra svo mikil barátta verður um sæti í Meistaradeildinni á komandi tímabili.

Þegar leikmenn gengu til búningsherbergja var markalaust og hélst staðan þannig út allan leikinn.

Þrátt fyrir markaleysi var leikurinn ekki tíðindalaus. Stefan Daniel Radu, leikmaður Lazio, fékk sitt annað gula spjald og þar með rautt spjald á 80.mínútu.

Liðin eru því enn jöfn í 3.-4. sæti deildarinnar þegar sex leikir eru eftir.

Lazio 0-0 Roma
Rautt spjald: Stefan Daniel Radu, Lazio (80')
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner