Mæta Íslandsmeisturunum í úrslitaleiknum
Valur 1-2 Stjarnan
0-1 Harpa Þorsteinsdóttir (1')
0-2 Katrín Ásbjörnsdóttir (4')
1-2 Crystal Thomas (69')
0-1 Harpa Þorsteinsdóttir (1')
0-2 Katrín Ásbjörnsdóttir (4')
1-2 Crystal Thomas (69')
Stjarnan er komin í úrslit Lengjubikars kvenna eftir 1-2 sigur á Valskonum á Valsvelli í dag.
Stjarnan byrjaði gríðarlega vel en Harpa Þorsteinsdóttir skoraði á fyrstu mínútu leiksins og Katrín Ásbjörnsdóttir var búin að tvöfalda forystu liðsins eftir aðeins fjórar mínútur.
Staðan var 0-2 þegar liðin gengu til búningsklefa en Valskonur minnkuðu muninn á 69. mínútu er Crystal Thomas skoraði en nær komust þær ekki og Stjörnusigur staðreynd.
Stjarnan mætir Þór/KA, sem vann Breiðablik í hinum undanúrslitaleiknum, í úrslitum en leikurinn fer fram föstudaginn 20. apríl.
Athugasemdir