,,Þetta er staðurinn sem maður hræðist einna mest að fara á, það er engin lygi og ég segi það alveg frá hjartanu. Maður er alltaf drullustressaður að koma hérna og spila við liðið sem John þjálfar" sagði Jóhann Kristinn Gunnarsson þjálfari Þórs/KA eftir 1-0 sigur á Aftureldingu á Varmá í dag og vísaði í John Andrews þjálfara Aftureldingar.
,,Þetta er bara snillingur. Snillingur í að vera góður í því sem hann ætlar sér, að láta liðið sitt spila þannig að þær verja markið rosalega vel. Þó það hafi litið út í dag nokkrum sinnum að það væri frekar okkar mál að klára ekki færin þá er hann að gera magnaða hluti með lið sem myndi aldrei skrifast með 5-6-7 bestu liðunum í deildinni á pappírunum."
,,Ég get alveg sagt þér það, og það er ekki oft sem maður talar um eitthvað svona fyrir leiki en fyrir þennan leik var á hreinu að við vissum að þetta yrði ekki nein slátrun. Það þýddi ekki að leyfa sér að hugsa um að við myndum skora fullt af mörkum með tilliti til einhvers mannskaps eða stöðu í deild sem er ekki glæsileg hjá okkur. Við vissum að eitt mark í plús á andstæðinginn, þrjú sig yrði líklega raunin þegar upp væri staðið. Ég er virkilega ánægður með mínar stelpur að sína þolinmæði."
Nánar er rætt við Jóhann Kristinn í sjónvarpinu að ofan.





















