Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fös 15. júní 2018 17:00
Ingólfur Páll Ingólfsson
Chelsea nálgast samkomulag við Sarri
Sarri er áfram orðaður við Chelsea.
Sarri er áfram orðaður við Chelsea.
Mynd: Getty Images
Chelsea nálgast samkomulag við Maurizio Sarri sem nýjan knattspyrnustjóra félagsins.

Sarri hefur verið sterklega orðaður við stjórnarstöðuna á Brúnni í allt sumar og nú virðast hafa orðið framfarir í viðræðum Chelsea og Napoli um bætur fyrir þjálfarann. Sarri var látinn fara frá Napoli eftir tímabilið en Chelsea þarf samt að greiða bætur fyrir hann.

Viðræður hafa verið í gangi undanfarnar vikur en félögin tvö hefur hingað til ekki tekist að koma sér saman um upphæð sem Chelsea greiðir fyrir þjálfarann.

Framtíð Antonio Conte, sem á eitt ár eftir af samningi sínum við Chelsea, hefur verið í algjörri óvissu og það er ljóst að Chelsea mun þurfa að borga honum væna summu ákveði þeir að segja honum upp.

Þá er félagið líklegt til þess að ráða Gianfranco Zola sem aðstoðarmann Sarri en hann er goðsögn meðal stuðningsmanna Chelsea.
Athugasemdir
banner
banner
banner