„Það er hálft ár síðan þetta var planað. Konan planaði allt," segir Svavar Elliði Svavarsson, stuðningsmaður íslenska landsliðsins, en hann er mættur til Moskvu fyrir leik Íslands og Argentínu á morgun.
Svavar Elliði á rússneska eiginkonu og hann hefur því áður komið til Moskvu. Hann er spenntur fyrir leiknum á morgun.
Svavar Elliði á rússneska eiginkonu og hann hefur því áður komið til Moskvu. Hann er spenntur fyrir leiknum á morgun.
„Þetta verður spennandi leikur. Ég held að Ísland gæti tekið þetta. Ísland vinnur 2-0."
Svavar Elliði á hið magnaða lag "Afmæli" og hann greip í míkrafóninn í viðtalinu hér að ofan.
Athugasemdir