Guðmundur Magnússon fyriliði Framara var gríðarlega svekktur eftir leik sinna manna gegn HK-ingum í dag. Framarar fengu sigurmark á sig þegar langt var liðið á uppbóartíman í seinni hálfleik og eru þá búnir að tapa þremur leikjum í röð.
Lestu um leikinn: Fram 2 - 3 HK
" Við mætum ekki til leiks og menn eru með hausinn einhversstaðar allr annarstaðar, leið og menn byrja að fókusa erum við miklu betra liðið, að skora tvö mörk á heimavelli á að vera nóg til að vinna leik"
Halldór Breiðfjörð dómari leiksins tók nokkrar umdeildar ákvarðannir í dag oft við litla hryfningu Framara. " Það er alltaf auðvelt eftir tapleiki að fara tala um dómgæslu, hún vara bara jafn góð og við í dag."
Framarar eru nú komnir í 8.sæti deildarinnar en Guðmundur segist vera bjartsýnn á framhaldið " Það á vera skemmtilegt í fótbolta og ef menn nenna leggja sig fram þá er bara bjart framundan" sagði Guðmundur að lokum.
Viðtalið má sjá hér í heild að ofan.
Athugasemdir