Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
Ísak Óli: FH var langfyrsti kosturinn hjá mér
Bestur í Mjólkurbikarnum: Vakinn með símhringingu - „Á Jölla mikið að þakka"
Sigdís Eva: Vissum að við gætum þetta og sýndum það í leiknum
Pétur: Það var ekkert lið inni á vellinum
John Andrews: Vorum að spila gegn líklega besta liði landsins
Kallaði þetta gott eftir fimm hnéaðgerðir og fær góð ráð frá pabba sínum
Þurfti að róa Pablo eftir leik - „Leikmenn eiga ekki að skipta sér af áhorfendum“
„Ef þetta heldur svona áfram verða bara allir í banni eftir smá stund"
Hefði sætt sig við jafntefli - „Ég held að við höfum reynt 5 eða 6 plön í þessum leik“
Alex Freyr ósáttur: Þetta er bara sorglegt
Eysteinn á von á geggjuðum leik - „Jölli er alltaf Jölli í Portúgal"
Arnór Smára: Hafði persónulega mikla þýðingu fyrir mig
Draumadráttur Jökuls: Augnablik á stóran hluta af mínu hjarta og mun alltaf gera
Kjartan Henry: Hallgrímur sá ekki til sólar eftir það
Var vítaspyrnudómurinn í Árbæ rangur?
Lék sinn fyrsta leik í efstu deild og vildi víti - „Fann fyrir snertingu og lét mig detta"
Líður eins og Valsarar hafi tapað leiknum - „Hafði aldrei trú á því að hann væri að fara skora"
Arnar Grétars: Gerði mikið fyrir okkur að vera með frábæran markmann
Svekktur yfir því að vinna ekki Val - „Mjög dapurt víti, svo við tölum hreint út“
Jón Þór: Bíð jafn spenntur og þú
   lau 15. júlí 2017 18:00
Arnar Daði Arnarsson
EM í Hollandi
Katrín: Það var mjög sárt að missa af síðasta móti
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
„Það er mjög gott að vera komin og Holland tekur vel á móti okkur," sagði landsliðskonan Katrín Ásbjörnsdóttir í viðtali fyrir fyrstu æfingu kvennalandsliðsins í Ermelo í Hollandi fyrr í dag.

Stelpurnar fengu frábærar viðtökur í Leifstöð í gær fyrir brottför til Hollands.

„Ég er ennþá smá í sjokki. Við verðum samt að koma okkur niður á jörðina en þetta var frábært og nauðsynlegt að fá þessar móttökur."

Katrín missti af síðasta stórmóti sem fram fór í Svíþjóð árið 2013 vegna meiðsla.

„Ég er spennt fyrir þessu móti. Ég missti auðvitað af síðasta stórmóti 2013 þannig ég er klár fyrir þetta mót. Það var mjög sárt að missa af síðasta móti vegna meiðsla en að vera hér í dag er frábært," sagði Katrín en býst hún við því að byrja gegn Frakklandi á þriðjudaginn?

„Við erum með margar góðar stelpur fram á við, heila sjö sóknarmenn sem geta leyst allar þessar þrjár stöður fram á við. Ég er klár í allt og gef mig 110% fram í hvaða verkefni sem er. "

Viðtalið í heild sinni má sjá í sjónvarpinu hér að ofan.
Athugasemdir
banner
banner
banner