Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   lau 15. júlí 2017 21:00
Sigurður Eyjólfur Sigurjónsson
Leicester hafnar tilboði Roma í Riyad Mahrez
Riyad Mahrez.
Riyad Mahrez.
Mynd: Getty Images
Leicester City hefur hafnað 20 milljóna punda tilboði Roma í Riyad Mahrez, samkvæmt heimildum Sky Sports á Ítalíu.

Talið er að Leicester sé tilbúið að leyfa Mahrez að fara ef tilboð berst upp á 30 milljónir punda.

Mahrez sem hefur einnig verið öðru hverju orðaður við Arsenal er að öllum líkindum á leið frá Leicester.

Hann var algjör lykilmaður þegar Leicester City varð Englandsmeistari tímabilið 2015/16, og hann skrifaði undir nýjan 4 ára samning við Leicester í ágúst síðastliðnum.

Hann náði sér hins vegar engan veginn á strik á síðasta tímabili þegar Leicester lenti í 12. sæti í ensku úrvalsdeildarinnar.
Athugasemdir
banner
banner