Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
Jökull: Þeir voru frábærir - Við áttum kannski ekkert skilið úr þessum leik
Hetja HK kíkir ekkert niður í bæ: Ekkert mikið að gera þar miðað við í London
Hrannar Bogi eftir hetjulega frammistöðu Augnabliks: Við nálgumst leiki alltaf alveg eins
Fékk afmælisgjöf fyrir leikinn: Ég fékk Þróttaratrefil og nokkrar Stellur
Nýir tímar í Laugardalnum - „Finnst bara tilvalið að með því fylgi nýtt merki“
Haukur Páll: Ekki spurning um að koma mönnum fyrir
Heimir Guðjóns: Hefði verið gult spjald í fyrra
Gylfi Þór: Skrítið að spila gegn liði sem ég var hjá í 10 ár
Úlli: Fékk held ég nóg af liðsfélögum sínum
Bjarni Jó: Nýttum færin okkar illa
Gunnar Magnús: Alsæll þrátt fyrir að það hafi endað í jafntefli
Ólafur Kristjáns: Ekki hægt að gera neitt við því núna
Kristján Guðmunds: Munum rífa okkur í gang eftir þetta
John Andrews: Gæti ekki verið stoltari
Nik: Vigdís hefur staðið sig vel sem framherji
Glenn: Komum hingað með því hugarfari að vinna leikinn
Vigdís Lilja: Ætla að spila frammi í sumar og skora eins mikið og ég get
Sáttur Arnar Gunnlaugs: Erum að senda ágæt skilaboð til liðanna í deildinni
Höskuldur brattur eftir leik: Maður verður að jafna sig hratt á þessu
Elskar stóru leikina - „Vona að fólk viti að þeir kitla mig.“
   mán 15. september 2014 22:03
Gunnar Birgisson
Ágúst Gylfason: Hann var með svamp fyrir legghlífar
Gústi Púst var manna sáttastur.
Gústi Púst var manna sáttastur.
Mynd: Ingólfur Hannes Leósson
Ágúst Gylfason þjálfari Fjölnis var sáttur með sína menn í leikslok þegar þeir sigldu heim 1-3 sigri á Laugardalsvelli gegn Fram. Með sigrinum spyrntu Fjölnir sér úr fallsæti og opnuðu fallbaráttuna upp á gátt í Pepsi deildinni. Ágúst var virkilega sáttur með stuðninginn sem liðið fékk í dag.

Lestu um leikinn: Fram 1 -  3 Fjölnir

,,Þetta var frábær karakter og frábær stuðningur sem skóp þennan sigur í dag á frábærum velli, flott lið sem stóð sig með prýði. Strax frá fyrstu mínútu sýndum við sjálfstraust og héldum boltanum vel, vorum þolinmóðir og settum þrjú flott mörk. Sigur og þrjú stig í dag sem er kærkomið," sagði Ágúst í samtali við Fótbolta.net.

,,Við þurfum að treysta á okkur, þannig hefur það alltaf verið. Ef við erum í lagi þá uppskerum við, við vorum í lagi í dag og góð vinnusemi og ég vona að þannig verði það áfram."

Skemmtilegt atvik átti sér stað í hálfleik þegar Matthew Turner Ratajczak og Bergsveinn Ólafsson mættu seint í seinni hálfleikinn, Ágúst var með útskýringar á því.
,,Þeir sáu að það var mikil rigning í gangi og skiptu um skó, dómarinn gaf þeim ekki séns og komu þeir þessvegna aðeins of seint."

Annað skemmtilegt atvik þegar Aron Sigurðarson átti að koma inn á en tafir urðu á því.
,,Hann var með svamp fyrir legghlífar og þurfti að fara setja á sig legghlífar," sagði Ágúst.

Næsti leikur Fjölnis er heimaleikur gegn Stjörnunni.
,,Það verður mjög erfitt, taplaust lið að mæta í Grafarvoginn, en það verður hörkuleikur milli tveggja góðra liða."

Viðtalið í heild sinni má sjá hér að ofan.

Athugasemdir
banner
banner
banner