Juan Cuadrado, kantmaður Fiorentina, telur góðar líkur á því að hann geri nýjan samning við ítalska félagið.
Kólumbíski landsliðsmaðurinn var sterklega orðaður við stórlið á borð við Manchester United og Barcelona í sumar, en hann var einn af lykilmönnum Kólumbíu á HM 2014.
Kólumbíski landsliðsmaðurinn var sterklega orðaður við stórlið á borð við Manchester United og Barcelona í sumar, en hann var einn af lykilmönnum Kólumbíu á HM 2014.
,,Ég var rólegur í sumar. Mér líður vel hérna með liðsfélögum mínum," sagði Cuadrado.
,,Ég vil ekki ræða samningamál hérna. Umboðsmaðurinn minn sér um það. Við munum funda með félaginu og ég tel að við munum komast að samkomulagi."
Athugasemdir