Andres Iniesta, miðjumaður Barcelona, segir að liðið geti alltaf treyst á þá Lionel Messi og Neymar til að tryggja sér sigra.
Katalóníurisarnir eru með fullt hús stiga eftir þrjá deildarleiki, þar á meðal 2-0 sigur gegn Athletic Bilbao á laugardag þar sem Neymar skoraði tvö mörk sem Messi lagði upp.
Katalóníurisarnir eru með fullt hús stiga eftir þrjá deildarleiki, þar á meðal 2-0 sigur gegn Athletic Bilbao á laugardag þar sem Neymar skoraði tvö mörk sem Messi lagði upp.
,,Við erum að tala um tvo leikmenn með óendanlega hæfileika," sagði Iniesta við Mundo Deportivo.
,,Við getum alltaf búist við því besta frá þeim báðum."
Athugasemdir