Filippo Inzaghi, þjálfari AC Milan, segist hafa verið bæði reiður og ánægður eftir 5-4 sigur sinna manna gegn Parma í ótrúlegum leik.
Leikurinn var hörkuskemmtun og var nóg um dramatík. Jeremy Menez skoraði magnað mark fyrir AC Milan eftir varnarmistök Parma og undir lokin skoraði Mattia De Sciglio fáránlegt sjálfsmark fyrir Mílanómenn.

,,Ég er reiður, en við verðum að vera ánægðir líka," sagði Inzaghi eftir leik.
,,Þetta er ótrúlegur leikmannahópur og við megum ekki gleyma hvaðan við komum. Strákarnir eru með frábært hugarfar og þrátt fyrir varnarmistökin ættum við að vera ánægðir."
,,Það hefði verið synd ef við hefðum ekki unnið, við vorum alltaf með forystuna."
Athugasemdir