Arsenal endurnýjar áhuga á Luiz - Man Utd reynir við Todibo - Tottenham vill Sudakov
   mán 15. september 2014 20:38
Ívan Guðjón Baldursson
Ítalía: Emil byrjaði í sigri gegn Palermo
Hinn 37 ára gamli Luca Toni skoraði jöfnunarmark Verona úr vítaspyrnu.
Hinn 37 ára gamli Luca Toni skoraði jöfnunarmark Verona úr vítaspyrnu.
Mynd: Getty Images
Verona 2 - 1 Palermo
0-1 Franco Vazquez ('18)
1-1 Luca Toni ('41, víti)
2-1 Eros Pisano ('78, sjálfsmark)

Verona lagði Palermo í eina leik kvöldsins í ítalska boltanum þar sem Emil Hallfreðsson var í byrjunarliði heimamanna.

Emil fékk gult spjald á 72. mínútu og var tekinn af velli fimm mínútum síðar, mínútu áður en Eros Pisano setti boltann óvart í eigið net.

Verona er með fjögur stig eftir tvær umferðir á meðan nýliðar Palermo eru með eitt stig eftir jafntefli við Sampdoria í fyrstu umferð.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner