Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   sun 15. október 2017 16:54
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
England: Gabbiadini bjargaði stigi gegn Newcastle
Mynd: Getty Images
Southampton 2 - 2 Newcastle
0-1 Isaac Hayden ('20 )
1-1 Manolo Gabbiadini ('49 )
1-2 Ayoze Perez ('51 )
2-2 Manolo Gabbiadini ('75 , víti)

Southampton og Newcastle áttust við í seinni leik dagsins í ensku úrvalsdeildinni. Fyrr í dag gerði Everton jafntefli gegn Brighton.

Í þessum leik var jafntefli aftur niðurstaðan.

Newcastle komst yfir með markið Isaac Hayden í fyrri hálfleiknum og staðan þegar liðin gengu til búningsklefa var 1-0.

Ítalinn Manolo Gabbiadini jafnaði í upphafi seinni hálfleiks, en Ayoze Perez var ekki lengi að koma gestunum aftur yfir.

Newcastle var með forystu þangað til stundarfjórðungur var eftir en
þá jafnaði Gabbiani með sínu öðru marki. Jöfnunarmarkið frá ítalska sóknarmanninum kom úr vítaspyrnu.

Liðin eru um miðja deild, Newcastle með 11 stig og dýrlingarnir í Southampton hefa stigi minna.
Athugasemdir
banner