Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   sun 15. október 2017 20:05
Ívan Guðjón Baldursson
Gabriel Jesus: De Bruyne einn af þeim bestu í heimi
Mynd: Getty Images
Kevin de Bruyne og Gabriel Jesus áttu mjög góðan leik er Manchester City valtaði yfir Stoke í ensku Úrvalsdeildinni, með sjö mörkum gegn tveimur.

Jesus sagði eftir leikinn að De Bruyne væri meðal bestu leikmanna í heimi.

„Hann er einn af bestu leikmönnum í heimi í dag. Gæðin hans eru frábær og einstaklingshæfileikarnir ótrúlegir en það sem gerir hann að heimsklassaleikmanni er öll vinnan sem hann skilar fyrir liðið og hvernig hann tengir við alla samherja sína," sagði Jesus.

Stuðningsmenn City kölluðu nafn De Bruyne á meðan mörkunum rigndi inn.

„Kevin á skilið að fá ást frá stuðningsmönnum. Við ákveðum ekki hvaða leikmenn stuðningsmenn elska, það eina sem skiptir máli er að allir leikmenn gefi sig alla í verkefnið."
Athugasemdir
banner
banner