Leicester fær West Brom í heimsókn annað kvöld. Craig Shakespeare, knattspyrnustjóri Leicester, spilaði yfir hundrað leiki með West Brom og var í meira en áratug í þjálfaraliði félagsins.
Leicester hefur ekki unnið West Brom á heimavelli í 23 ár og er því ljóst að Shakespeare bíður verðugt verkefni annað kvöld.
Leicester hefur ekki unnið West Brom á heimavelli í 23 ár og er því ljóst að Shakespeare bíður verðugt verkefni annað kvöld.
„Tími minn hjá West Brom var frábær og kynntist ég mikið af góðu fólki þar sem ég er ennþá í sambandi við í dag. Þetta er félag sem að ég ólst upp með að fylgjast með en við munum gera allt til að fá þrjú stig."sagði Shakespeare.
Athugasemdir