„Við stefndum að því að klára þetta ár á góðu nótunum eftir frábært ár 2016 og vildum klára þetta með sigri, það tókst," sagði Arnór Ingvi Traustason kantmaður Íslands eftir 0-2 sigur á Möltu í vináttulandsleik í kvöld.
Lestu um leikinn: Ísland 2 - 0 Malta
Arnór Ingvi skoraði fyrra mark Íslands í leiknum og lýsti því svona:
„Elías kom með fína sendingu og ég vissi að Viðar væri fyrir aftan mig og reyndi að opna fyrir hann, en boltinn datt fyrir mig og ég tók hann og skaut á markið. Hann fór í stöngina og markmanninn og inn. Sjáum til hvort þeir skrái þetta á mig eða skrái þetta sem sjálfsmark, en ég vil fá þetta mark skráð á mig."
Tíu breytingar voru gerðar á íslenska liðinu frá síðasta leik gegn Króatíu um helgina.
„Við vorum ekki vanir að spila með hvorum öðrum og smá óöryggi í einhverju, en við fórum vel yfir hlutina í hálfleik og vorum allt annað lið í seinni hálfleik."
Gríðarleg rigning var í upphafi leiksins.
„Þetta var mikið þegar leikurinn byrjaði en svo bætti í. Ég hef aldrei séð aðra eins rigningu. Maður var rennvotur eftir leikinn. Þetta var bara hressandi."
Nánar er rætt við Arnór Ingva í sjónvarpinu að ofan.
Athugasemdir