Fotbolti.net
15.11.17 - 18:00
Elvar Geir Magnússon

Ernir Bjarna í Leikni (Staðfest)

Ernir Bjarnason í Breiðholtið.

Ernir Bjarnason í Breiðholtið.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Leiknir í Breiðholti hefur fengið til sín Erni Bjarnason frá Breiðabliki en hann hefur gert tveggja ára samning við Leiknismenn.

Ernir er miðjumaður fæddur 1997 en hann lék í sumar níu leiki með Kópavogsliðinu í Pepsi-deildinni.

Í fyrra var hann valinn efnilegasti leikmaður 2. deildar karla en þá var hann hjá Vestra á láni frá Breiðabliki.

Ernir hefur leikið 16 leiki fyrir yngri landslið Íslands á árunum 2013-2015.
„Flottur leikmaður hér á ferð en við óskum honum góðs gengis í Leiknisbúningum í sumar,\" segir í frétt á heimasíðu Leiknis.

Leiknismenn enduðu í fimmta sæti Inkasso-deildarinnar á liðnu tímabili auk þess að komast í undanúrslit bikarsins. Þetta var fyrsta tímabil liðsins undir stjórn Kristófers Sigurgeirssonar sem þekkir Erni vel enda fyrrum aðstoðarþjálfari Blika.
Ernir í leik með Blikum á liðnu sumri.

Ernir í leik með Blikum á liðnu sumri.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.