Það gengur lítið hjá Luke Shaw, bakverði Manchester United, innan sem utan vallar þessa daganna.
Shaw er ekki inn í myndinni hjá Jose Mourinho, stjóra Man Utd, og til að bæta gráu ofan á svart lenti Shaw í bílaveseni á æfingasvæði Manchester United á dögunum.
Shaw er ekki inn í myndinni hjá Jose Mourinho, stjóra Man Utd, og til að bæta gráu ofan á svart lenti Shaw í bílaveseni á æfingasvæði Manchester United á dögunum.
Götublaðið The Sun segir frá því að Shaw hafi klesst á Bentley-bifreið varnarmannsins Phil Jones á Carrington, æfingasvæði United.
Samkvæmt heimildarmanni blaðsins missti Shaw einbeitingu sína sem varð til þess að hann klessti á.
Shaw hefur aðeins verið með bílpróf í rúmt eitt ár.
Shaw mun sjá um allan viðgerðarkostnað, en það meiddist enginn og skemmdir á bílunum voru minniháttar.
Athugasemdir