Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fös 15. desember 2017 07:00
Ingólfur Stefánsson
Guardiola segir Tottenham og Chelsea spila besta fótboltann
Mynd: Getty Images
Manchester City og Tottenham mætast í stórleik helgarinnar í ensku úrvalsdeildinni á morgun. Með sigri getur Manchester City náð 21 stiga forskoti á Tottenham.

Pep Guardiola þjálfari Manchester City segir að leikurinn við Tottenham verði gott próf fyrir lið sitt. Hann segir Tottenham ásamt Chelsea þau lið sem spili bestan fótbolta en margir hafa túlkað þau ummæli sem skot á Jose Mourinho og Manchester United.

Með sigri á morgun vinnur Manchester City sinn 16. leik í röð. Tottenham eru vanir því að mæta liðum á sigurgöngu en á síðasta leiktímabili unnu þeir öruggan 2-0 sigur á Chelsea sem hafði fyrir það unnið 13 leiki í röð.



Athugasemdir
banner