Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fös 15. desember 2017 17:30
Elvar Geir Magnússon
Mourinho: Þetta er erfitt starf
Jose Mourinho.
Jose Mourinho.
Mynd: Getty Images
Jose Mourinho, stjóri Manchester United, sat fyrir svörum á fréttamannafundi í dag og var meðal annars spurður að því hvort hann hefði gert þriggja ára samning við United því hann teldi að það væri tíminn sem hann þyrfti til að koma liðinu á toppinn?

„Nei. Ég skrifaði undir þriggja ára samning því það var lengdin sem ég ákvað með eigandanum og stjórninni. Ég vissi að þetta myndi ekki vera auðvelt starf. Ég hef reynslu af því frá fyrri tíð að fara til félags með mikla sögu, þar sem fólk horfir á söguna en ekki nútímans. Miklar væntingar. Þetta starf er erfitt en ég er með reynslu, þetta er ekkert nýtt fyrir mér," sagði Mourinho.

Er þetta svipað og þegar hann var hjá Real Madrid?

„Ég fór til Real Madrid. Staða okkar var erfið. Langt síðan við höfðum unnið meistaratitilinn eða bikarinn. Það voru liðin einhver ár síðan liðið komst í 8-liða úrslit Meistaradeildarinnar. Það var erfitt en gott fyrir mína þróun sem knattspyrnustjóri."

Manchester United er í öðru sæti ensku úrvalsdeildarinnar, ellefu stigum á eftir erkifjendunum í City. United heimsækir West Bromwich Albion á sunnudaginn.
Stöðutaflan England Premier league - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Man City 32 22 7 3 76 32 +44 73
2 Arsenal 32 22 5 5 75 26 +49 71
3 Liverpool 32 21 8 3 72 31 +41 71
4 Aston Villa 33 19 6 8 68 49 +19 63
5 Tottenham 32 18 6 8 65 49 +16 60
6 Newcastle 32 15 5 12 69 52 +17 50
7 Man Utd 32 15 5 12 47 48 -1 50
8 West Ham 33 13 9 11 52 58 -6 48
9 Chelsea 31 13 8 10 61 52 +9 47
10 Brighton 32 11 11 10 52 50 +2 44
11 Wolves 32 12 7 13 46 51 -5 43
12 Fulham 33 12 6 15 49 51 -2 42
13 Bournemouth 32 11 9 12 47 57 -10 42
14 Crystal Palace 32 8 9 15 37 54 -17 33
15 Brentford 33 8 8 17 47 58 -11 32
16 Everton 32 9 8 15 32 48 -16 27
17 Nott. Forest 33 7 9 17 42 58 -16 26
18 Luton 33 6 7 20 46 70 -24 25
19 Burnley 33 4 8 21 33 68 -35 20
20 Sheffield Utd 32 3 7 22 30 84 -54 16
Athugasemdir
banner
banner