Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fös 15. desember 2017 19:00
Magnús Már Einarsson
Ramsey missir af jólatörninni
Mynd: Getty Images
Aaron Ramsey, miðjumaður Arsenal, verður frá keppni næstu þrjár vikurnar vegna meiðsla aftan í læri. Ramsey meididst gegn Southampton á laugardaginn.

Arsenal á fjóra leiki framundan í ensku úrvalsdeildinni áður en nýtt ár gengur í garð sem og leik gegn West Ham í deildabikarnum í næstu viku.

Arsenal mætir Chelsea í byrjun janúar sem og Nottingham Forest í bikarnum en Ramsey missir af öllum þessum leikjum.

Theo Walcott verður einnig fjarri góðu gamni gegn Newcastle á morgun vegna meiðsla en hann missir þó væntanlega ekki af fleiri leikjum.
Athugasemdir
banner
banner