Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   þri 16. janúar 2018 17:00
Magnús Már Einarsson
Ekki ljóst hvort Matt Garner verði með ÍBV
Matt varð bikarmeistari með ÍBV síðastliðið sumar.
Matt varð bikarmeistari með ÍBV síðastliðið sumar.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Ekki er ennþá ljóst hvort að reynsluboltinn Matt Garner verði áfram með ÍBV í Pepsi-deildinni í sumar. Matt er samningslaus og ekki er ljóst hver framhaldið er hjá honum.

Matt er enskur varnarmaður sem hefur leikið með ÍBV nánast samfleytt síðan árið 2004.

„Það eru þreifingar í gangi á milli leikmannsins og félagsins. Hvernig það endar veit ég ekki," sagði Kristján Guðmundsson, þjálfari ÍBV, við Fótbolta.net í dag.

Hinn 33 ára gamli Matt sneri aftur í lið ÍBV í fyrra eftir erfið meiðsli sem höfðu haldið honum lengi frá keppni.

Matt fótbrotnaði illa undir lok sumars 2014 og var ekkert með árið 2015. 2016 lék hann með KFS í 3. deildinni.

Síðastliðið sumar kom Matt sterkur til baka í lið ÍBV en hann spilaði sautján leiki í Pepsi-deildinni og varð einnig bikarmeistari með liðinu.
Athugasemdir
banner
banner