Barcelona vill Díaz frá Liverpool - Úlfarnir skoða markverði - City til í að hlusta á tilboð í Grealish
   þri 16. janúar 2018 08:00
Ívan Guðjón Baldursson
Emre Can er að skoða samning frá Liverpool
Mynd: Getty Images
Þýski miðjumaðurinn Emre Can segist ekki vera búinn að ákveða neitt í sambandi við framtíð sína.

Samningur Can við Liverpool rennur út næsta sumar og hafa Ítalíumeistarar Juventus mikinn áhuga á að krækja í hann.

„Umboðsmaðurinn minn er að skoða þetta allt saman. Eina sem er víst er að ég er leikmaður Liverpool þar til í sumar," sagði Can við fréttamenn.

„Ég er ekki búinn að skrifa undir hjá neinum. Við erum ennþá í viðræðum. Ég er ennþá í viðræðum við Liverpool, ég gæti ennþá framlengt samninginn. Þetta er stórkostlegt knattspyrnufélag."

Liverpool varð fyrsta lið ensku deildarinnar til að sigra Manchester City þegar liðin mættust um helgina og var Emre Can himinlifandi með sigurinn.

„Þetta var ótrúlegt, við spiluðum virkilega vel og þeir réðu ekki við pressuna frá okkur. Við lögðum allt í sölurnar og áttum fyllilega skilið að vinna."
Athugasemdir
banner
banner
banner