Zidane hefur augastað á Man Utd - Guimaraes áfram hjá Newcastle - Bayern hefur ekki rætt við Rangnick
   þri 16. janúar 2018 21:52
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Enski bikarinn: Magnaður Jón Daði
Mynd: Getty Images
Reading 3 - 0 Stevenage
1-0 Jon Daði Böðvarsson ('32 )
2-0 Jon Daði Böðvarsson ('44 )
3-0 Jon Daði Böðvarsson ('64 )

Jón Daði Böðvarsson fékk tækifæri í byrjunarliði Reading í kvöld gegn Stevenage og nýtti það til hins ýtrasta.

Selfyssingurinn kom Reading yfir á 32. mínútu og var búinn að skora aftur áður en dómarinn flautaði til hálfleiks. Staðan var 2-0 og óhætt að segja að Jón Daði hafi átt stóran þátt í því.

Jón Daði fullkomnaði svo þrennu sína þegar um 20 mínútur voru liðnar af seinni hálfleiknum.

Magnaður leikur hjá Jóni Daða og vonandi verður þetta til þess að hann fær fleiri byrjunarliðsleiki á næstunni.

Axel Óskar Andrésson sat allan tímann á bekknum hjá Reading sem er komið áfram í 4. umferð bikarkeppninnar.









Athugasemdir
banner
banner
banner