Kristrún Kristjánsdóttir, vinstri bakvörður Stjörnunnar, verður lítið sem ekkert með liðinu í Pepsi-deildinni í sumar en hún er barnshafandi.
„Þau gleðitíðindi hafa borist að Kristrún Kristjánsdóttir mun vera barnshafandi," segir á Facebook síðu Stjörnunnar.
„Kristrún hefur á undanförnum árum verið fastamaður í liði Stjörnunnar en hún hefur leikið rúmlega 190 leiki með mfl. frá því að hún kom til félagins 2009."
„Kristrún mun því lítið koma við sögu á komandi tímabili í Pepsi-deildinni en okkur hlakkar til að sjá hana aftur á vellinum sem fyrst."
Ásgerður Stefanía Baldursdóttir, fyrirliði Stjörnunnar, er að koma aftur í liðið eftir að hafa eignast barn á síðasta ári. Þá sneri markadrottningin Harpa Þorsteinsdóttir aftur í liðið síðastliðið vor eftir barnsburð en þó er ekki ljóst hversu mikið hún verður með í sumar.
Athugasemdir