Það er komið að úrvalsliði eftir viðburðaríka helgi í enska boltanum. Mánudagsleikur Manchester United og Stoke er að sjálfsögðu með í myndinni og þá á Liverpool tvo fulltrúa eftir 4-3 sigur liðsins gegn Manchester City í stórleik helgarinnar.
Daily Star valdi liðið þessa vikuna.
Markvörður: Kasper Schmeichel (Leicester) - Tók mikilvægar markvörslur í markalausu jafntefli gegn Chelsea.
Hægri bakvörður: Antonio Valencia (Man Utd) - Skoraði fyrsta markið í 3-0 sigrinum gegn Stoke, glæsilegt skot og það með vinstri!
Miðvörður: Jonny Evans (West Brom) - Varnarmaðurinn reyndi var öflugur og skoraði í mikilvægum sigri gegn Brighton.
Vinstri bakvörður: Arthur Masuaku (West Ham) - Hrikalega traustur í 4-1 sigri West Ham gegn Huddersfield.
Miðjumaður: Paul Pogba (Man Utd) - Umferðarstjórinn á miðju United í 3-0 sigrinum gegn Stoke. Tvær stoðsendingar frá Frakkanum.
Hægri kantur: Alex Oxlade-Chamberlain (Liverpool) - Vægnaður Liverpoool skoraði í 4-3 sigrinum gegn City og átti fantaflottan leik.
Sóknarmiðjumaður: Riyad Mahrez (Leicester) - Aðalleikarinn í frábærum fyrri hálfleik gegn Chelsea og var óheppinn að búa ekki til óvæntan sigur Leicester.
Athugasemdir