Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
Jökull: Pirrandi leikur
Hetja HK kíkir ekkert niður í bæ: Ekkert mikið að gera þar miðað við í London
Hrannar Bogi eftir hetjulega frammistöðu Augnabliks: Við nálgumst leiki alltaf alveg eins
Fékk afmælisgjöf fyrir leikinn: Ég fékk Þróttaratrefil og nokkrar Stellur
Nýir tímar í Laugardalnum - „Finnst bara tilvalið að með því fylgi nýtt merki“
Haukur Páll: Ekki spurning um að koma mönnum fyrir
Heimir Guðjóns: Hefði verið gult spjald í fyrra
Gylfi Þór: Skrítið að spila gegn liði sem ég var hjá í 10 ár
Úlli: Fékk held ég nóg af liðsfélögum sínum
Bjarni Jó: Nýttum færin okkar illa
Gunnar Magnús: Alsæll þrátt fyrir að það hafi endað í jafntefli
Ólafur Kristjáns: Ekki hægt að gera neitt við því núna
Kristján Guðmunds: Munum rífa okkur í gang eftir þetta
John Andrews: Gæti ekki verið stoltari
Nik: Vigdís hefur staðið sig vel sem framherji
Glenn: Komum hingað með því hugarfari að vinna leikinn
Vigdís Lilja: Ætla að spila frammi í sumar og skora eins mikið og ég get
Sáttur Arnar Gunnlaugs: Erum að senda ágæt skilaboð til liðanna í deildinni
Höskuldur brattur eftir leik: Maður verður að jafna sig hratt á þessu
Elskar stóru leikina - „Vona að fólk viti að þeir kitla mig.“
banner
   þri 16. janúar 2018 22:19
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Rúnar Páll: Við eigum ekki séns
Rúnar Páll var léttur eftir sigur á ÍA í Fótbolta.net mótinu í kvöld.
Rúnar Páll var léttur eftir sigur á ÍA í Fótbolta.net mótinu í kvöld.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
„Það er mjög gott að fá þessa leiki," sagði Rúnar Páll Sigmundsson, þjálfari Stjörnunnar eftir 2-0 sigur á ÍA í Fótbolta.net mótinu í kvöld.

Sóknarmaðurinn Hólmbert Aron Friðjónsson er farinn í atvinnumennsku til Álasunds í Noregi. Það er mikill missir fyrir Stjörnuna að mati Rúnars.

„Þetta er fyrst og fremst frábært fyrir Hólmbert. Hann gerði fína hluti fyrir okkur. Vonandi gengur honum sem best þarna úti í Álasundi," sagði hann.

„Það er að sjálfsögðu missir fyrir okkur að missa leikmenn eins og Hólmbert, sem skoraði 10, 11 mörk í fyrrasumar. En það kemur maður í manns stað."

Stjarnan samdi við Guðmund Stein Hafsteinsson í síðustu viku. Hann kemur til með að fylla skarð Hólmberts að einverju leyti.

„Guðmundur skoraði átta mörk í 16 eða 17 leikjum með Víkingi Ólafsvík og við teljum að hann geti styrkt okkur og leyst Hólmbert af hólmi með sínum leik."

Valur og FH hafa farið hamförum á leikmannamarkaðnum í vetur. Á Stjarnan einhver séns í þessi lið? „Við eigum ekki séns," sagði Rúnar Páll léttur í bragði við því.

„Það er fínt hjá þeim. Það er yfirleitt þannig að okkur er spáð þokkalegu gengi og það heldur væntanlega áfram."

Viðtalið er í heild sinni hér að ofan.
Athugasemdir
banner
banner
banner