Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   þri 16. janúar 2018 11:28
Magnús Már Einarsson
Terrance William í Stjörnuna (Staðfest)
Terrance William Dieterich.
Terrance William Dieterich.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Stjarnan hefur fengið markvörðinn Terrance William Dieterich til liðs við sig.

Haraldur Björnsson er aðalmarkvörður Stjörnunnar en í haust kom Guðjón Orri Sigurjónsson til félagsins frá Selfossi. Guðjón Orri sleit hásin á einni af fyrstu æfingum vetrarins og hann verður frá keppni þar til í vor.

Terrance hefur æft með Stjörnunni að undanförnu og hann hefur nú gengið til liðs við félagið. Hann mun leysa Guðjón Orra af á meðan hann jafnar sig af meiðslunum.

Terrance er þrítugur Bandaríkjamaður en hann hefur leikið með Tindastóli, Haukum og Gróttu á ferli sínum. Á síðasta tímabili spilaði Terrance tíu leiki með Gróttu í Inkasso-deildinni áður en hann fór aftur í Hauka þar sem hann lék átta leiki síðari hluta sumars.

Stjarnan mætir ÍA í Fótbolta.net mótinu klukkan 20:00 í Kórnum í kvöld en Garðbæingar unnu Breiðablik 1-0 í fyrsta lek um helginaa. Máni Austmann Hilmarsson, framherji Stjörnunnar, er með Fótbolta.net snappið (fotboltinet) á leikdegi í dag.
Athugasemdir
banner
banner
banner