Theo Walcott, leikmaður Arsenal, er mættur í læknisskoðun hjá Everton. Félögin hafa náð samkomulagi um að Walcott gangi í raðir Everton en kaupverðið er yfir 20 milljónir punda.
Walcott hefur skorað 108 mörk í 397 leikjum með Arsenal en hann kom til félagsins frá Southampton fyrir tólf árum.
Walcott hefur skorað 108 mörk í 397 leikjum með Arsenal en hann kom til félagsins frá Southampton fyrir tólf árum.
Hinn 28 ára gamli Walcott á að bæta meiri hraða við sóknarleik Everton en það er eitthvað sem hefur vantað á tímabilinu.
Pierre-Emerick Aubameyang framherji Borussia Dortmund og Malcom kantmaður Bordeuax hafa báðir verið orðaðir við Arsenal að undanförnu en peningurinn sem kemur inn fyrir Walcott gæti hjálpað til við að fjármagna kaup á öðrum hvorum þeirra.
Þá gæti Henrikh Mkhitaryan einnig komið í skiptum fyrir Alexis Sanchez.
Athugasemdir