Þar sem Liverpool á ekki næsta leik fyrir en 27. febrúar, gegn Leicester í deildinni, ákvað Jurgen Klopp að best væri að bregða á það ráð að skella sér í æfingaferð.
Liðið fór til La Manga á Spáni á miðvikudag og verður þar fram yfir helgi. Þar á meðal annars að hlaða batteríin enda hefur verið þreyta í liðinu á nýju ári.
Liðið fór til La Manga á Spáni á miðvikudag og verður þar fram yfir helgi. Þar á meðal annars að hlaða batteríin enda hefur verið þreyta í liðinu á nýju ári.
Eins og sjá má á meðfylgjandi myndum virðast menn vera með góða skapið með sér og ferðast á æfingar á hjólum.
„Þetta þjappar hópnum saman og hefur góð áhrif á liðsandann," segir John Aldridge, fyrrum leikmaður Liverpool.
„Jurgen Klopp fær tækifæri til að vinna í þeim hlutum sem hafa ekki verið að virka og fínpússað ýmislegt. Það er frábær hugmynd að fara í þessa ferð."
Liverpool er ekki í Evrópukeppni og er fallið úr báðum bikarkeppnum svo öll einbeitingin fer í að ná topp fjórum í deildinni og þar með Meistaradeildarsæti. Undirbúningur fyrir þá baráttu fer fram á La Manga.
Athugasemdir