fös 16. mars 2018 21:00
Ingólfur Stefánsson
Íslenskt barn verður boltaberi á leik Íslands og Argentínu á HM
Öll börn fædd 2004 – 2007 eiga möguleika á að verða fyrir valinu
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Það verður íslenskt barn sem mun hljóta þann heiður að verða boltaberi á fyrsta leik Íslands á Heimsmeistaramóti.

Barnið mun afhenda strákunum okkar og Messi keppnisboltann í landsleik Íslands og Argentínu í Rússlandi sem fram fer í Moskvu laugardaginn 16. júní næstkomandi.

Bílaumboðið Askja, umboðsaðili Kia á Íslandi, mun sjá um valið á barninu en Kia Motors er einn aðal styrktaraðili FIFA.

Askja hvetur börn fædd árin 2004 til 2007 og forráðamenn þeirra til að gera stutt og einfalt myndband sem sýnir ástríðu barnsins fyrir fótbolta og senda myndbandið til leiks í gegnum vefsíðu.

Dómnefnd mun velja 30 áhugaverðustu myndböndin úr innsendingunum, 15 frá stelpum og 15 frá strákum, sem munu keppa í undanúrslitum á Facebook. 10 efstu munu síðan keppa í úrslitakeppni í lok apríl.

Vinningshafinn mun vinna ferð með forráðamanni til Rússlands á þennan sögulega stórleik þar sem barnið verður fyrsti boltaberi í sögu Íslands á HM.

Hér er um einstakt tækifæri að ræða en aðeins einn boltaberi verður á hverjum leikjanna 64 sem fram fara á HM.

Athugasemdir
banner
banner
banner
banner