Barcelona vill Díaz frá Liverpool - Úlfarnir skoða markverði - City til í að hlusta á tilboð í Grealish
   fös 16. mars 2018 22:15
Ingólfur Stefánsson
Lengjubikar kvenna: Grindavík með stórsigur
María Sól skoraði tvö
María Sól skoraði tvö
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Haukar 1-5 Grindavík
0-1 María Sól Jakobsdóttir ('9)
0-2 María Sól Jakobsdóttir ('19)
0-3 Margrét Hulda Þorsteinsdóttir ('28)
0-4 Una Rós Unnarsdóttir ('42)
1-4 Valdís Björg Sigurbjörnsdóttir ('73)
1-5 Helga Guðrún Kristinsdóttir ('78)

Haukar og Grindavík mættust í B deild Lengjubikars kvenna í kvöld.

María Sól Jakobsdóttir skoraði tvö mörk á fyrstu 20 mínútum leiksins og kom Grindavík 2-0 yfir. Margrét Hulda og Una Rós bættu við tveimur mörkum fyrir hálfleik.

Valdís Björg Sigurbjörnsdóttir klóraði í bakkann fyrir Hauka á 73. mínútu en Helga Guðrún Kristinsdóttir gulltryggði öruggan 5-1 sigur Grindavíkur fimm mínútum síðar.

Þetta er fyrsti sigur Grindavíkur í Lengjubikarnum í ár en Haukar eiga enn eftir að sigra leik eftir tvær tilraunir.

Markaskorarar af urslit.net
Athugasemdir
banner
banner
banner