Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fös 16. mars 2018 21:57
Ingólfur Stefánsson
Lengjubikarinn: Arna Sif tryggði Þór/KA sigur
Arna Sif
Arna Sif
Mynd: Fótbolti.net - Tomasz Kolodziejski
ÍBV 1-2 Þór/KA
1-0 Markaskorara vantar ('11)
1-1 Lára Einarsdóttir ('58)
1-2 Arna Sif Ásgrímsdóttir ('71)

Íslandsmeistarar Þór/KA unnu í kvöld sinn fyrsta sigur í Lengjubikarnum í ár.

ÍBV komust yfir á 11. mínútu og leiddu í hálfleik. Lára Einarsdóttir jafnaði metinn fyrir Þór/KA á 58. mínútu leiksins.

Það var svo Arna Sif Ásgrímsdóttir sem gekk á dögunum til liðs við Þór/KA á nýjan leik sem tryggði liðinu sigur með marki á 71. mínútu leiksins.

Þór/KA er eftir leikinn í þriðja sæti í A deild Lengjubikars kvenna. ÍBV er á botninum en eiga leik til góða.
Athugasemdir
banner
banner
banner