Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   fös 16. mars 2018 21:00
Ingólfur Stefánsson
Lengjubikarinn: Fram sigraði Njarðvík
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fram 2-1 Njarðvík
0-1 Theodór Guðni Halldórsson ('2)
1-1 Hlynur Atli Magnússon ('24)
2-1 Orri Gunnarsson ('80)

Fram og Njarðvík mættust í riðli 1 í A deild Lengjubikarsins í kvöld. Íslandsmeistarar Vals tryggðu sér sigur í riðlinum fyrr í kvöld með sigri á ÍBV.

Njarðvíkingar komust yfir strax á 2. mínútu leiksins með marki frá Theodóri Guðna Halldórssyni.

Hlynur Atli Magnússon jafnaði metinn fyrir Fram á 24. mínútu og jafnt var í hálfleik. Sigurmarkið kom ekki fyrr en á 80. mínútu.

Þá skoraði Orri Gunnarsson og tryggði Fram góðan sigur. Framarar unnu tvo af fimm leikjum sínum í riðlinum en Njarðvík unnu einn og gerðu eitt jafntefli.


Athugasemdir
banner
banner
banner
banner