Zidane hefur augastað á Man Utd - Guimaraes áfram hjá Newcastle - Bayern hefur ekki rætt við Rangnick
Jökull: Læti og stemning sem stuðningsmennirnir spúa yfir völlinn til strákanna
Helgi Fróði: Geggjað að vera í besta klúbbnum
Addi Grétars pirraður: Menn þurfa að hafa smá 'sens' fyrir því sem þeir eru að tala um
Ísak Óli: FH var langfyrsti kosturinn hjá mér
Bestur í Mjólkurbikarnum: Vakinn með símhringingu - „Á Jölla mikið að þakka"
Sigdís Eva: Vissum að við gætum þetta og sýndum það í leiknum
Pétur: Það var ekkert lið inni á vellinum
John Andrews: Vorum að spila gegn líklega besta liði landsins
Kallaði þetta gott eftir fimm hnéaðgerðir og fær góð ráð frá pabba sínum
Þurfti að róa Pablo eftir leik - „Leikmenn eiga ekki að skipta sér af áhorfendum“
„Ef þetta heldur svona áfram verða bara allir í banni eftir smá stund"
Hefði sætt sig við jafntefli - „Ég held að við höfum reynt 5 eða 6 plön í þessum leik“
Alex Freyr ósáttur: Þetta er bara sorglegt
Eysteinn á von á geggjuðum leik - „Jölli er alltaf Jölli í Portúgal"
Arnór Smára: Hafði persónulega mikla þýðingu fyrir mig
Draumadráttur Jökuls: Augnablik á stóran hluta af mínu hjarta og mun alltaf gera
Kjartan Henry: Hallgrímur sá ekki til sólar eftir það
Var vítaspyrnudómurinn í Árbæ rangur?
Lék sinn fyrsta leik í efstu deild og vildi víti - „Fann fyrir snertingu og lét mig detta"
Líður eins og Valsarar hafi tapað leiknum - „Hafði aldrei trú á því að hann væri að fara skora"
   fös 16. mars 2018 08:30
Hafliði Breiðfjörð
Sjáðu flugvélina sem flytur HM bikarinn til Íslands
Flugvélin lendir í Keflavík 25. mars.
Flugvélin lendir í Keflavík 25. mars.
Mynd: Coca Cola
Mynd: Coca Cola
Sunnudaginn 25. mars næstkomandi kemur HM bikarinn til Íslands og þjóðin fær kost á að fá mynd af sér með hann í Smáralind.

Það er mikil viðhöfn sem fylgir komu bikarsins hingað til lands en hann kemur hingað með sérstakri Coca Cola flugvél sem er innréttuð fyrir ferðalagið.

Myndband af vélinni má sjá hér að ofan og fleiri myndir að neðan. HM bikarinn hóf ferðalagið um heiminn 22. janúar síðastliðinn en hafði fram að því verið á ferðalagi um Rússland síðan í október.

Myndirnar eru teknar þegar ferðalagið hófst en þá voru saman komnir Andrea Pirlo og Sir Goeff Hurst. Það verður svo Christian Karembeu sem kemur með hann hingað til lands 24. mars en áður en að því kemur fer hann meðal annars til Frakklands, Þýskalkands og Noregs.

Það er svo skemmtilegt frá því að segja að eftir að HM bikarinn yfirgefur Ísland mun hann fara til Argentínu en það er einmitt mótherji Ísland í fyrsta leik á HM 16. júnín næstkomandi.

Coca-Cola mun vera með heilmikið í gangi í Smáralind dagana 23. - 25. mars þar sem bikarinn mun einmitt vera til sýnist þann 25. mars og því ættu allir að kíkja í Smáralindina og koma sér í HM gírinn. Christian Karembeu kemur með bikarinn inn í Smáralind og aldrei að vita nema gestir geti spilað battabolta með honum en hann vann einmitt HM með Frökkum 1998.

Lestu meira um ferð bikarsins hér á vef FIFA
Athugasemdir
banner
banner
banner