Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mið 16. apríl 2014 09:00
Alexander Freyr Tamimi
Alex nálægt því að gera nýjan samning við PSG
Alex fer að krota undir fljótlega.
Alex fer að krota undir fljótlega.
Mynd: Getty Images
Alex, varnarmaður Paris Saint-Germain, segist vera nálægt því að skrifa undir nýjan samning við félagið.

Brasilíski landsliðsmaðurinn gekk til liðs við PSG frá Chelsea árið 2012 og hjálpaði liðinu að verða franskur meistari á síðustu leiktíð.

Alex er nú við það að framlengja samning sinn við félagið um eitt ár.

,,Ég er mjög ánægður í París og það er nánast öruggt að ég endurnýi samning minn," sagði Alex við GlobEsporte.

,,Ég tel að ég muni skrifa undir eins árs samning eftir viku eða tvær."
Athugasemdir
banner
banner