Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mið 16. apríl 2014 22:22
Elvar Geir Magnússon
Bayern tryggði sér úrslitaleik gegn Dortmund
Mario Götze skoraði eitt mark í kvöld.
Mario Götze skoraði eitt mark í kvöld.
Mynd: Getty Images
Það verður draumaúrslitaleikur í þýsku bikarkeppninni en þar munu meistararnir í Bayern München mæta Borussia Dortmund.

Bayern komst í úrslitaleikinn í kvöld með því að vinna 5-1 sigur gegn B-deildarliði Kaiserslautern.

Bæjarar voru 2-0 yfir í hálfleik eftir að Bastian Schweinsteiger og Toni Kroos náðu að skora. Thomas Muller skoraði þriðja markið úr vítaspyrnu í upphafi seinni hálfleiks áður en Simon Zoller minnkuðu muninn,

Mario Mandzukic og Mario Götze áttu lokaorðin fyrir Bayern sem sigldi örugglega í úrslit.

Einbeiting Kaiserslautern það sem eftir lifir tímabils mun fara í að reyna að koma sér aftur í úrvalsdeildina en liðið situr í fjórða sæti B-deildarinnar.
Athugasemdir
banner
banner
banner