Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mið 16. apríl 2014 15:33
Elvar Geir Magnússon
Orðrómur um að Sturridge sé tæpur fyrir Chelsea leikinn
Daniel Sturridge fagnar marki.
Daniel Sturridge fagnar marki.
Mynd: Getty Images
Stuðningsmenn Liverpool bíða eftir fréttum af meiðslum Daniel Sturridge en hann var tekinn af velli eftir 66 mínútur í 3-2 sigrinum gegn Manchester City á sunnudag.

Sturridge kvartaði yfir þyngslum eftir leikinn.

Dean Sturridge, frændi leikmannsins, sagði í sjónvarpsviðtali að Daniel yrði ekki með gegn Norwich um helgina og væri spurningamerk fyrir stórleikinn gegn Chelsea viku síðar.

Það yrði áfall fyrir Liverpool ef Sturridge spilar ekki næstu leiki enda verið funheitur upp við mark andstæðingana og liðið í harðri baráttu um Englandsmeistaratitilinn.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner