Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fim 16. apríl 2015 22:30
Daníel Freyr Jónsson
Mynd: Áhugaverður samanburður á Coutinho og Di Maria
Angel Di Maria - flopp eða ekki flopp?
Angel Di Maria - flopp eða ekki flopp?
Mynd: Getty Images
Philippe Coutinho, leikmaður Liverpool, var í dag tilnefndur í valinu á besta unga leikmanninum í ensku úrvalsdeildinni í ár og kom það fáum á óvart.

Argentínumaðurinn Angel Di Maria, vængmaður Manchester United, verður hinsvegar á engum slíkum listum í ár eftir að hafa síður en svo slegið í gegn á sinni fyrstu leiktíð hjá félaginu.

Sky Sports bar hinvegar saman frammistöðu leikmannanna tveggja í tímabilinu og er samanburðurinn svo sannarlega áhugaverður. Coutinho hefur leikið rúmlega 500 mínútum meir en Di Maria og skorað einu marki betur, en á öðrum vígstöðum má fullyrða að Di Maria hafi staðið sig betur.

Di Maria hefur lagt upp 8 mörk og skapað 45 tækifæri fyrir liðsfélaga sína, á meðan Coutinho hefur lagt upp 4 mörk og skapað 38 færi.

Samanburðin má sjá hér að neðan.
Athugasemdir
banner
banner
banner