Arsenal endurnýjar áhuga á Luiz - Man Utd reynir við Todibo - Tottenham vill Sudakov
   mán 16. apríl 2018 09:12
Magnús Már Einarsson
Leikmenn Man City fögnuðu á bar með stuðningsmönnum
Mynd: Getty Images
Manchester City varð enskur meistari í gær þegar WBA lagði Manchester United 1-0.

Leikmenn City voru hér og þar þegar úrslitin lágu fyrir. Leroy Sane var á leik Borussia Dortmund og Schalke í Þýskalandi og stjórinn Pep Guardiola var í golfi.

Vincent Kompany, Kyle Walker, Fabian Delph, John Stones og Bernardo Silva fóru allir á bar ásamt stuðningsmönnum þar sem þeir sungu og fögnuðu.

Þar var skálað og meðal annars sungið Kolo og Yaya Toure lagið. Hér að neðan má sjá ræðu Vincent Kompany á barnum og hluta af söngnum.

Smelltu hér til að sjá Yaya og Kolo lagið sungið á barnum (næstefsta myndband)



Athugasemdir
banner
banner
banner