Haaland, Toney, Gomes, Diomande, Gyokeres, Southgate, O'Neil, De Zerbi og fleiri góðir í slúðri dagsins
banner
   mán 16. apríl 2018 09:00
Magnús Már Einarsson
Lemar til Arsenal eða Liverpool?
Powerade
Thomas Lemar.
Thomas Lemar.
Mynd: Getty Images
Ensku slúðurblöðin eru klár með vangaveltur dagsins á félagaskiptamarkaðinum.



Mónakó ætlar að íhuga tilboð í Thomas Lemar (22) í sumar. Lemar hefur verið orðaður við Arsenal og Liverpool. (Telefoot)

Derek McInnes og Tony Mowbray koma til greina sem næstu stjórar WBA. (Mirror)

James Pallotta, forseti Roma, segir að félagið ætli ekki að selja markvörðinn Alisson (25) en hann hefur verið orðaður við Liverpool. (Express)

Antonio Rudiger (25) segist ekki hafa hugmynd um af hverju hann var ekki í liðinu hjá Chelsea gegn Southampton í fyrradag. (Mirror)

Newcastle ætlar að kaupa markövrðinn Martin Dubravaka (29) frá Sparat Prag en hann hefur staðið sig vel síðan hann kom á láni í janúar. (Express)

Rafael Benitez, stjóri Newcastle, ætlar að ræða við Mike Ashley, eiganda félagsins, áður en hann skrifar undir nýjan samning. Benitez vill fá að vita hvort hann fái pening til leikmannakaupa í sumar áður en hann skrifar undir. (Telegraph)

Jose Mourinho, stjóri Manchester United, ætlar ekki að gera neitt brjálæðistlegt á félagaskiptamarkaðinum í sumar. (Sky Sports)

Roy Hodgson, stjóri Crystal Palace, segist sjá eftir því að hafa ekki náð að sannfæra Wilfried Zaha (25) um að spila fyrir enska landsliðið frekar en Fílabeinsströndina. (Mail)

Arsenal, Chelsea, Liverpool, Manchester City, Manchester United og Tottenham eru að auka tekjur sínar með meiri pening fyrir sjónvarpsrétt utan Englands. (Mail)

Mohamed Salah (25) segir mikilvægara fyrir sig að vinna Meistaradeildina heldur en að vera markahæstur í ensku úrvalsdeildinni. (Guardian)
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner