Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mán 16. apríl 2018 10:00
Gunnar Logi Gylfason
Mourinho óskaði Manchester City til hamingju
Mynd: Getty Images
Jose Mourinho og lærisveinar hans frestuðu fagnaðarlátum nágranna sinna um nokkra daga er þeir unnu þá 3-2 í síðustu viku.

Mourinho segist þó hafa notað tækifærið og óskað þeim til hamingju, augliti til auglits.

„Ég vissi að fyrr eða seinna yrðu þeir meistarar og ef ég væri í þeirra stöðu yrði ég ósáttur ef einhver segði að þeir unnu því að United tapaði gegn West Brom. Þeir unnu því þeir voru besta liðið, þeir töpuðu fáum stigum," sagði Portúgalinn.

Þrátt fyrir að geta ekki unnið deildina lengur vilja leikmenn Man United eflaust klára tímabilið með sæmd og ekki missa Liverpool upp fyrir sig en United er aðeins einu stigi fyrir ofan Liverpool en á þó einn leik inni.


Athugasemdir
banner
banner