Arsenal endurnýjar áhuga á Luiz - Man Utd reynir við Todibo - Tottenham vill Sudakov
   mán 16. apríl 2018 08:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Oliver fer á reynslu til Fulham í viku
Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson
Oliver Stefánsson, varnarmaður úr ÍA er á leið til enska félagsins Fulham á reynslu. Oliver, sem er fæddur árið 2002, fór til Fulham í gær en hann verður í Englandi í viku.

Oliver er U16 landsliðsmaður en hann byrjaði tvo af þremur leikjum liðsins á æfingamóti í Litháen á dögunum.

Hann er nú farinn á Fulham til reynslu en hjá Fulham er fyrir einn Íslendingur, Jón Dagur Þorsteinsson sem er í U23 liði félagsins.

Fulham leikur í Championship-deildinni, næst efstu deild Englands en er í baráttu um að komast upp í ensku úrvalsdeildina.
Athugasemdir
banner
banner
banner