mán 16. apríl 2018 11:30
Magnús Már Einarsson
Roma ætlar ekki að selja Alisson til Liverpool
Mynd: Getty Images
James Pallotta, forseti Roma, segir að félagið ætli ekki að selja brasilíska markvörðinn Alisson í sumar.

Alisson hefur verið sterklega orðaður við Liverpool að undanförnu en Roma hefur engan áhuga á að selja hann.

„Við höfum engar áætlanir um að selja hann. Þá meina ég núll," sagði Pallotta.

„Ég er viss um að við eigum eftir að fá tilboð en við höfum ekki áhuga á að selja hann. Hann er frábær markvörður."

Liverpool og Roma mætast í undanúrslitum Meistaradeildarinnar en fyrri leikurinn fer fram á Anfield í næstu viku.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner