mán 16. apríl 2018 13:31
Magnús Már Einarsson
Undirbúningsfélag um uppbyggingu Laugardalsvallar stofnað
Frá Laugardalsvelli.
Frá Laugardalsvelli.
Mynd: Fótbolti.net - Ómar Vilhelmsson
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Undirbúningi fyrir ákvörðun um uppbyggingu Laugardalsvallar skal lokið fyrir lok árs 2018. Starfshópur sem ríkið og Reykjavíkurborg skipaði 11. janúar sl. um uppbyggingu Laugardalsvallar hefur nú skilað af sér niðurstöðum. Hópurinn fór yfir hugmyndir um þjóðarleikvang fyrir knattspyrnu, lagði mat á þær og gerði tillögur um mögulega uppbyggingu. Þetta kemur fram á heimasíðu KSÍ í dag.

„Verði tekin ákvörðun um byggingu þjóðarleikvangs getur útboðsferli framkvæmda tekið frá nokkrum mánuðum og upp undir eitt ár og framkvæmdatími verið að minnsta kosti tvö ár," segir einnig í niðurstöðunum.

Helstu niðurstöður starfshópsins eru eftirfarandi:
1. Margt mælir með því að núverandi þjóðarleikvangur í Laugardal verði endurnýjaður.
2. Ríkið, Reykjavíkurborg og KSÍ stofni undirbúningsfélag um mögulega framkvæmd og taki upp viðræður um eignarhald á þjóðarleikvangnum.
3. Undirbúningsfélagið bjóði út samning um endanlega þarfagreiningu, skipulagningu verkefnisins, kostnaðaráætlun og gerð útboðsgagna.
4. Þjóðarleikvangur getur hvort heldur sem er verið opinn knattspyrnuvöllur eða fjölnotaleikvangur með opnanlegu þaki.
5. Kostnaður og áhætta við fjölnotaleikvang er vel umfram kostnað og áhættu við opinn knattspyrnuvöll.
6. Ákvörðun um byggingu og eignarhald þjóðarleikvangs verði tekin með hliðsjón af niðurstöðu vinnu undirbúningsfélags og stöðu opinberra fjármála.
7. Áætlað er að undirbúningi fyrir ákvörðun verði lokið í lok árs 2018.
8. Verði tekin ákvörðun um byggingu þjóðarleikvangs getur útboðsferli framkvæmda tekið frá nokkrum mánuðum og upp undir eitt ár og framkvæmdatími verið að minnsta kosti tvö ár.
9. Huga verður að mögulegu fordæmi ákvörðunar um byggingu þjóðarleikvangs fyrir aðrar íþróttagreinar með hliðsjón af væntanlegri reglugerð um þjóðarleikvanga.
10. Hvetja ætti til opinnar umræðu um byggingu þjóðarleikvangs á grundvelli þeirra ítarlegu gagna sem tekin hafa verið saman á undanförnum misserum.

Ríkisstjórn, borgarráð og stjórn KSÍ hafa samþykkt að stofna undirbúningsfélag um mögulega framkvæmd. Undirbúningi fyrir ákvörðun um uppbyggingu Laugardalsvallar skal lokið fyrir lok árs 2018.

„Þetta er mikilvægur og jákvæður áfangi á þeirri vegferð sem við erum á með endurbyggingu Laugardalsvallar. Ég er sannfærður um að við munum taka góða og upplýsta ákvörðun um völlinn síðar á árinu, sem fyrst, og þá vonandi um byggingu fjölnota leikvangs sem að nýtist hvað best fótboltanum og samfélaginu öllu," segir Guðni Bergsson, formaður KSÍ.

Á heimasíðu Stjórnaráðsins er að finna gögn málsins, m.a. skýrslu starfshópsins, hagkvæmniathugun og rýni á rekstrarkostnaði og stofnkostnaði.
Athugasemdir
banner
banner